Bæði karla- og kvennalið Grindavíkur hafa fengið nýja bandaríska leikmenn. Hjá karlaliðinu er lentur Jeremy Kelly að nafni og hefur að undanförnu spilað í D-deildinni svokölluðu sem er einskonar undirdeild NBA. Jeremy hefur komið við í Evrópu, n.t. í Pro-A deildinni í Frakklandi. Jeremy er leikstjórnandi og er um 192 cm að hæð.
Kelly lofar góður á æfingu og spilar hann sinn fyrsta leik með Grindavík annað kvöld gegn Stjörnunni og verður fróðlegt að sjá hvernig honum vegnar.
Liðsmaður kvennaliðsins er væntanlegur um leið og tilskilin leyfi fást.