Í nýjasta blaði Fiskifrétta er sagt frá fiskvinnslu í ferðamennsku í Grindavík í heilsíðu umfjöllun. Þar er vakin athygli á nýstárlegri þjónustu Stakkavíkur þar sem ferðamönnum og hópum gefst tækifæri til að heimsækja og skoða starfandi fiskvinnslu af útsýnispalli og njóta veitinga úr matsal með yfirsýn yfir vinnsluna.
Xperience Fish eða upplifðu fisk er yfirskriftin á þessu verkni. Guðbjörg Sigríður Hermannsdóttir kokkur og umsjónarmaður verkefnisins segir í samtali við Fiskifréttir að hugmyndin að þessu verkefni hafi komið upp í tengslum við breytingar sem var verið að gera á vinnsluhúsi Stakkavíkur.
,,Við bjóðum bæði innlendum og erlendum hópum að koma til okkar og sjá hvernig nútíma fiskvinnsla fer fram og upplifa stemmninguna í kringum hana. Hópunum er einnig boðið upp á humar- og fiskisúpu og salat með léttvíni eða bjór í veitingasal sem tekur allt að 80 manns í sæti og er með útsýni yfir fiskvinnsluna. Skoðunarferð með kaffi kostar 700 krónur en 2900 krónur með súpu og léttvíns- eða bjórglasi. Ef um er að ræða stóra hópa bjóðum við afslátt.
Heimsóknin byrjar í veitingarsalnum þar sem hópnum er sýnt kynningarmyndband sem Stakkavík lét framleiða þar sem fylgst er með veiðum um borð í línubátnum Þórkötlu GK. Túrinn var myndaður frá upphafi til enda og klipptur niður í hæfilega lengd. Hápunkturinn eru svo einstakar myndir sem teknar eru neðansjávar og sýna ýmsar fisktegundir og hvernig þorskurinn fer að þegar hann bítur á eða stelur af króknum. Næst er farið með hópinn á útsýnispallinn og gefin lýsing á því sem er að gerast niðri á gólfinu og hvers konar fisk sé verið að vinna hverju sinni," segir Guðbjörg í viðtalinu.
Fram kemur að hóparnir sem heimsótt hafi vinnsluna til þessa skiptist nokkuð jafnt milli Íslendinga og útlendinga. Þá er hugmyndin að ekki einungis sinna ferðamönnum heldur að fá líka skólahópa og starfsmannafélög og sýna fólki hvernig undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar starfar.