Valgerður Jennýjardóttir var kjörinn nýr formaður fimleikadeildar UMFG á aðalfundi deildarinnar síðasta þriðjudag. Á fundinn mættu 22 fundargestir, fráfarandi stjórn og fjórir þjálfarar.
Dagný Erla Vilbergsdóttir, fráfarandi formaður fimleikadeildarinnar, fór yfir starfið en iðkendur hafa aldrei verið fleiri en nú eða 177 börn (50 leikskólabörn og 127 grunnskólabörn). Á þeim e.t.v. eftir að fjölga næstu daga þar sem hafin er skráning í Parkour sem hefst í næstu viku ef næg þátttaka næst.
Dagný Erla hvatti foreldra til að taka þátt í starfinu á uppbyggjandi hátt fyrir deildina börnunum til heilla og talaði um að aðstandendur fimleikanna yrðu að hafa trú á því að úr húsnæðismálum leystist í framtíðinni. Hún sagði að deildin býr við að fá mun færri tíma í íþróttahúsinu en ásættanlegt er fyrir þetta marga iðkendur sem og rýran tækjabúnað og fjárstyrk.
Farið var yfir reikninga deildarinnar en reksturinn var réttum megin við núllið. Þjálfarar kynntu sig og sínar áherslur í þjálfun og fóru yfir fyrirhugaða viðburði vetrarins, s.s. fimleikamaraþon þar sem iðkendur safna áheitum til söfnunar til áhaldakaupa, jólasýninguna, hugmynd um æfingabúðir í Þorlákshöfn, innanfélagsmót o.fl.
Kosin var ný stjórn en úr stjórn gengu Dagný Erla Vilbergsdóttir formaður, Jóhanna Einarsdóttir gjaldkeri (sem mun þó starfa með nýrri stjórn til áramóta) og Lóa Mjöll Ægisdóttir meðstjórnandi.
Í nýrri stjórn eru: Valgerður Jennýjardóttir; formaður, Signý Ósk Ólafsdóttir, Björg Ólöf Bragadóttir, Ingigerður Gísladóttir og Steinþór Ingibergsson.
Efsta mynd: Nýr formaður, Valgerður, og fráfarandi formaður, Dagný Erla.
Myndir: Kristinn Benediktsson.
Ný stjórn fimleikadeildarinnar.