Bjarni Már Svavarsson formaður UMFG fór upp á Þorbjarnarfell í gær til þess að sækja gestabók sem hann setti upp þann 10. júní sl. í tilefni verkefnisins Fjölskyldan á fjallið á vegum UMFÍ. Í dag verða dregin út nöfn þeirra sem gengu á fjöll í sumar. Það kom Bjarna Má verlega á óvart hversu margir höfðu skráð sig í gestabókina á þessum tíma eða um 1400 manns.
Aðeins ein blaðsíða var auð í gestabókinni til þess að fylla út. Bjarni segist ætla með nýja gestabók fljótlega sem á að vera á toppi Þorbjarnar í vetur fyrir gesti og gangandi til þess að skrá sig.