Páll Valur Björnsson bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Grindavík verður milliliðalaust á Bryggjunni á morgun, fimmtudag, frá kl. 9-10. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Þess má geta að heimildamynd eftir Ólaf Rúnar Þorvarðarson verður sýnd á Bryggjunni alla virka daga kl. 17:00.
Myndin fangar Grindavíkurstemmningu frá árinu 1984. Í henni kemur fyrir margt fólk sem setti svip á bæinn á þeim tíma og sumir þeirra fallnir frá. Meðal annars eru viðtöl við eldri menn, myndir frá reknetaróðri, sjómannadeginum og bátum að koma inn í brimi, svo eitthvað sé nefnt.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.