Rímnaflæði fer fram föstudaginn 19. nóvember í félagsmiðstöðinni Miðbergi. Keppnin hefst kl. 20.00 en húsið opnar kl. 19.30. Keppnin hefur skapað sér fastan sess í dagskrárliðum félagsmiðstöðva um leið og hún vekur áhuga ungmenna á rappi og gefur því jákvæða umfjöllun. Á hverju ári sjáum við nýja og efnilega rappara sem sýna frábæra laga - og textasmíð. Í ár verður Rímnaflæði haldið í 12. sinn í Miðbergi.
Rímnaflæði er viðburður á vegum Samfés og lýtur sömu reglum og aðrar samkomur af þessu tagi. Þ.e starfsmaður skal fylgja bæði keppendum og áhorfendum á keppnina og verði á staðnum frá upphafi til enda. Þar með talið undirbúningur keppenda og soundcheck fyrr um daginn. Af gefnu tilefni er ítrekað að áhorfendum er ekki heimilt að mæta á staðinn á eigin vegum heldur verða allir að koma saman, þ.e. með sinni félagsmiðstöð og starfsmanni.
Skráningarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 15. nóvember.
Reglur Rímnaflæðis
1. Keppendur og áhorfendur verða að vera á grunnskóla aldri (8. - 10. bekk)
2. Lög og textar eiga að vera samin af keppendum. Stuldur á takti og ítrekaður stuldur á textabrotum mun snarlækka einkun frá dómurum.
3. Neysla tóbaks, áfengis og vímefna er stranglega bönnuð. Keppendum og áhorfendum verður vísað út ef upp kemst um slíkt. Ölvun ógildir miðann.
4. Textar sem fela í sér hatursáróður, kynþáttafordóma, kvenfyrirlitningu, jákvæða umsögn um neyslu áfengis og annarra fíkniefna snarklækka einkun frá dómurum. Hægt er að vísa keppendum frá ef um gróft brot er að ræða.
5. Eitt lag á keppenda. Hágmarks lengd atriðis 6 min. Hámarksfjöldi þátttakenda á sviði er 6 manneskjur.
6. Skilríkjaskylda.
Allar nánari upplýsingar veittar af starfsmönnum Þrumunnar.