Grindavíkurbær er kominn á samskiptavefinn Facebook sem er sá stærsti í heimi. Hugmyndin er að koma ýmsum upplýsingum á framfæri um uppákomur í bænum á Facebook og þannig styðja við heimasíðu bæjarins, www.grindavik.is. Grindvíkingar eru hvattir til þess að nýta sér þessa nýju þjónustu og gerast vinir Grindavíkurbæjar á Facebook. Um tilraunaverkefni er að ræða.
Vinsamlegast umgangist síðuna af virðingu þannig að hún þjóni tilgangi sínum. Þeir sem standa fyrir uppákomum í bænum er velkomið að skrá atburðina inn á síðuna.
Öllu óæskilegu efni verður hent út.