Kvennalið Hamars sótti tvö góð stig suður með sjó í gær er liðið lagði Grindavík í Röstinni. Grindavík stóð ágætlega í Hamri en Hvergerðingar lönduðu þó sigri að lokum. Hamar er ósigraður í deildinni í vetur en Grindavík hefur aðeins unnið einn leik.
Grindavík-Hamar 75-81
Grindavík: Charmaine Clark 19, Helga Hallgrímsdóttir 17/4 fráköst/6 stoðsendingar, Berglind Anna Magnúsdóttir 11/5 fráköst, Alexandra Marý Hauksdóttir 8, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 5/4 fráköst, Harpa Hallgrímsdóttir 4.