Fjallað er um úrvalsdeildarlið Grindavíkur í fjögurra síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag. Þar er m.a. viðtal við Ólaf Ólafsson, leikmann liðsins. Ólafur Ólafsson spilaði sig inn í firnasterkt lið Grindavíkur á síðustu leiktíð í Iceland Express-deildinni í körfuknattleik. Ólafur er aðeins tvítugur að aldri en hefur öðlast nokkra reynslu og segist tilbúinn til þess að láta frekar að sér kveða í vetur.
Ólafur er þekktur háloftafugl og hefur til að mynda sigrað í troðslukeppni KKÍ. Á síðustu leiktíð sýndi Ólafur að hann er öflugur varnarmaður og var gjarnan settur til höfuðs öflugustu sóknarmönnum andstæðinganna. Ólafur segist reikna með að spila stærra hlutverk í sókninni á þessari leiktíð.
,,Helgi Jónas sagði við mig að ég yrði í stærra hlutverki í vetur og ég held að ég hafi nýtt mér það ágætlega hingað til. Í fyrra var ég aðallega í því að gera það sem ég kunni, þ.e.a.s. spila vörn og taka fráköst. Í vetur verður kannski meira um að ég fái boltann þegar mikið er undir í leikjum. Þá er lagt upp með að nýta þann sprengikraft sem ég bý yfir til þess að keyra á varnarmanninn. Það er ábyrgðarhlutverk að fá það verkefni í Grindavíkurliðinu að ganga frá leikjum. Ég er alltaf tilbúinn ef til mín er leitað í leikjum, annað en bróðir minn sem er alltaf meiddur," sagði Ólafur léttur og sendi bróður sínum Þorleifi eitraða pillu af gömlum vana.
Grindavíkurstrákarnir mæta Haukum á útivelli næsta sunnudagskvöld.