Þegar rafmagnið fór af öllum Grindavíkurbæ á þriðjudaginn stöðvaðist fólkslyfta í Víðihlíð, dvalarheimili eldri borgara, á milli hæða með einn mann innanborðs. Kallað var á slökkviliðið til aðstoðar við að ná manninum út og gekk það fljótt og vel fyrir sig.
Voru það hárrétt viðbrögð starfsfólks að óska strax eftir aðstoð slökkviliðs við þessar aðstæður, að því er fram kemur á heimasíðu slökkviliðsins.