Körfuboltavertíðin hefst formlega um næstu helgi með leikjum Meistara meistaranna. Íslands- og bikarmeistarar Snæfells mæta Grindavík næsta sunnudag í Stykkishólmi kl. 19:15 hjá karlaliðunum en Grindavík mætir í þennan leik sem silfurliðið í síðustu bikarkeppni.
Þetta er árlegur góðgerðarleikur en allur ágóði af leikjunum rennur til Fjölskylduhjálpar Íslands.
Miðaverð á leikinn (og kvennaleik KR og Hauka) er 1500 kr. fyrir fullorðna og 700 kr. fyrir 15 ára og yngri.