Grindvíkingar hafa fengið danska leikmanninn Idu Tryggedson í sínar raðir fyrir komandi átök í Iceland Express deild kvenna. Grindavíkurstelpum er spáð 7. og næst neðsta sæti í spá sérfræðinga á karfan.is
Tryggedson kemur beint úr háskólaliði TCU og er því fyrrum liðsfélagi Helenu Sverrisdóttur. Tryggedsson er bakvörður og gerði 31 stig fyrir Grindavík í fyrrakvöld þegar liðið mætti Njarðvík í æfingaleik í Ljónagryfjunni.
Njarðvíkingar höfðu nauman sigur í leiknum 82-77.
(27:17) (43 - 34) (61 - 56)
Grindavík: Ida Tryggedson 31, Berglind Anna Magnúsdóttir 11.
Í umsögn karfan.is um kvennalið Grindavíku sem spáð er 7. sæti segir:
Grindavík - 7. sæti
Grindvíkingar máttu þola mikil ósköp þetta sumarið og er þeim spáð í 7. sæti deildarinnar. Jovana Lilja Stefánsdóttir, Ingibjörg Jakobsdóttir, Íris Sverrisdóttir og Petrúnella Skúladóttir sögðu skilið við liðið af hinum ýmsu ástæðum. Jóhann Ólafsson verður áfram þjálfari og mun mikið mæða á þeim systrum Helgu og Hörpu Hallgrímsdætrum ásamt danska bakverðinum Idu Treyggedsson sem kemur beint úr háskólaliði TCU þar sem hún lék með Helenu Sverrisdóttur.