Mánudaginn 26. október fer fram forvarnarfræðsla í grunnskólanum fyrir 7. og 8. bekkinga og foreldra þeirra á vegum Maritasamtakanna. Börn fá fræðslu að morgni sama dags en forráðamenn að kvöldi kl. 20:00 á sal skólans. Samtökin hafa komið margsinnis í skólana og ber öllum saman um að um árangursríka fyrirlestra sé að ræða. Það á ekki síður við um fyrirlesturinn fyrir foreldra sama kvöld kl. 20.00.