Nemendur í grunnskóla Grindavíkur náðu frábærum árangri í stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem haldin var fyrir skömmu sem er fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk. Verðlaunaafhending fór fram í gær og átti grunnskólinn í Grindavík 5 verðlaunahafa af 9, þar af sigurvegarana bæði í 9. og 10. bekk.
Í 10. bekk tóku 5 nemendur þátt fyrir hönd skólans. Sævar, Gunnar, Yrsa, Gísli og Brynjar. Gunnar Þorsteinsson stóð uppi sem sigurvegari og Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir varð í 3. sæti. Þá varð Gísli Gunnarsson í 4.-10. sæti.
9. bekkur var fjölmennur í keppninni því alls tóku 9 nemendur úr þeim árgangi þátt. Það voru þau: Elísabet Ósk, Hulda Sif, Daníel Leó, Elvar, Andri, Harpa, Nemanja, Guðjón og Hákon. Við eignuðumst einnig sigurvegara í þessu árgangi því Guðjón Sveinsson varð í 1. sæti. Hákon Ólafsson varð í 4. sæti.
Fimm nemendur úr skólanum tóku þátt í keppni 8. bekkja. Það voru þau: Lárus, Magnús Már, Lára Lind, Erla og Birta Rós. Magnús Ellertsson og Erla Þorsteinsdóttir jöfn í 2. til 3. sæti og Lára Lind Jakobsdóttir varð í 5. til 10. sæti.
Þáttakendur í 8.bekk voru alls: 36
Þáttakendur í 9.bekk voru alls: 53
Þáttakendur í 10.bekk voru alls: 41
Alls tóku þátt nemendur frá 9 skólum á Suðurnesjum.
Þeir sem lentu í verðlaunasætum fengu peningaverðlaun frá Íslandsbanka. Þá fengu verðlaunahafar í 10. bekk einnig grafíska reiknivél að gjöf frá Verkfræðistofu Suðurnesja.
Þetta er sannarlega glæsilegur árangur hjá nemendum grunnskólans og eiga allir þeir sem þátt tóku mikinn heiður skilið. Til hamingju krakkar!!!