Þriðjudaginn 13. apríl síðastliðinn var unglingastiginu boðið á tónleika í Grindavíkurkirkju að hlusta á hljómsveitina Klassart flytja verk hans og kynna fyrir nemendum lífshlaup Hallgríms Péturssonar prests og ljóðskálds í máli og tónum á nokkuð nýstárlegan máta. Að sama skapi var flutt eigið efni hljómsveitarinnar er hæfði tilefninu. Hljómsveitin Klassart er skipuð systkinunum Fríðu Dís, Smára og Pálmari Guðmundsbörnum. Hljómsveitin varð upphaflega til með þátttöku í blúslagakeppni Rásar 2 árið 2006 sem hljómsveitin sigraði. Það tók nemendur örlítinn tíma að taka við sér og sumir voru farnir að smella fingrum í takt við tónana sem ómuðu í kirkjunni. Við viljum þakka meðlimum Klassart fyrir góðan flutning ánægjulega stund í kirkjunni.