Markaðsstofa Suðurnesja hefur opnað nýjan upplýsingabás í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Er aðstaðan skipulögð þannig að hægt verði að veita fjölbreyttari þjónustu við flugfarþega en hingað til hefur verið hægt. Aðstaðan er stærri en áður með upplýsngarekkum fyrir hvern landshlua og ljósmyndir prýða veggi.
Boðið verður upp á bókunarþjónustu í upplýsingamiðstöðinni og hefur Markaðsstofan samið við ITA hf. um að annast reksturinn í Leifsstöð. Það er von þeirra sem að þessu standa að breytingarnar auðveldi gestum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar að skipuleggja ferðirsínar og veiti þeim meira öryggi í ferðum um landið. Markaðsstofan vill færa starfsmönnum Isavia ohf. og Sandgerðisbæjar bestu þakkir fyrir góðar undirtektir og skilning á þessu verkefni.
Mynd: Víkurfréttir.