Hildigunnur Árnadóttir hefur tekið til starfa sem félagsráðgjafi hjá Grindavíkurbæ. Hún tekur við af Páli Ólafssyni. Hildigunnur er félagsráðgjafi með starfsréttindi frá Háskóla Íslands 2008. Hún hefur unnið sem félagsráðgjafi á Þjónustumiðstöð Árbæjar frá útskrift.
Hildigunnur hefur aðallega komið að málum einstaklinga með fíknisjúkdóma, endurhæfingu, stuðningsþjónustu og fjárhagslegum stuðningi. Meðfram námi vann hún við ýmislegt sem kemur að félagslegri þjónustu. Hún sinnti félagslegri heimaþjónustu, tilsjón hjá fötluðum einstaklingum og persónulegri ráðgjöf við unglingsstúlkur í Hafnarfirði og Garðabæ.
,,Mitt helsta verkefni er að vera til taks fyrir fólk í Grindavík sem þarf á stuðningi að halda. Réttindi barna eru mér sérstaklega hugleikin og barátta gegn kynferðislegu ofbeldi," segir Hildigunnur.
Hildigunnur ólst upp í Þingeyjarsýslunni í hreinu sveitaloftinu eins og hún kemst að orði. Hún býr í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni.
,,Mér finnst hressandi að anda að mér kaldri sjávargolunni í Grindavík og hlakka til að hefjast handa!" sagði Hildigunnur að endingu.