Grindvíkingar eru í bullandi fallbaráttu eftir tap gegn Fylki 2-0 á Árbæjarvelli í gærkvöldi. Mörk Fylkis komu með mínútu millibili tíu mínútum fyrir leikslok en fram að því hafði Grindavík verið mun sterkari aðilinn. Úrslitin þýða að Grindavík er aðeins 3 stigum frá fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir en Grindavík á eftir að mæta KR á heimavelli á sunnudaginn og svo Selfossi á útivelli í lokaumferðinni.
Ólafur Örn Bjarnason, spilandi þjálfari Grindavíkur, var ekkert sérstaklega upplitsdjarfur í samtali við blaðamann Vísis eftir leik sinna manna gegn Fylki. Vildi Ólafur kenna augnabliks einbeitingarleysi er orsökuðu tvö mörk undir lok leiks.
„Fylkismennirnir bakka auðvitað alveg aftur að miðju og við náum að halda boltanum ágætlega en gengur erfiðlega að brjóta vörn þeirra á bak aftur. Það vantaði svona lokaslútt hjá okkur og í seinni hálfleik fáum við 2-3 færi en Fjalar ver glæsilega þarna nokkrum sinnum. Því miður tapast leikurinn á því að við missum hausinn í tvær mínútur í lokin og það er bara þannig að maður verður að halda einbeitingu allan leikinn."
Ólafur vildi þó ekki gráta þetta tap lengi og horfir einfaldlega bara fram á veginn. „Það er bara næsti leikur og við þurfum bara að bæta leik okkar og þá aukast líkur á stigum. Þetta er ekki flókið".