Verđlaunaleikritiđ Horn á höfđi sýnt í Borgarleikhúsinu

  • Fréttir
  • 15. september 2010

Barnaleikrit GRAL, Horn á höfði, verður sýnt í Borgarleikhúsinu frá og með 18. september næstkomandi. Sýningin var upphaflega frumsýnd í Grindavík í fyrra en hún var valin Barnasýning ársins 2010 á Grímunni í vor. Víðir Guðmundsson, leikari í verkinu, segir að velgengni þess hafi ekki komið sér á óvart.

„Það er auðvitað ekki sjálfgefið að sýning slái í gegn þegar hún er sett upp utan höfuðborgarsvæðisins, en við vissum að við vorum með gott leikrit í höndunum."

Auk Víðis leika þau Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson í verkinu en Vilhelm Anton Jónsson semur tónlistina. Leiksýningin er eftir þá Berg Þór Ingólfsson og Guðmund S. Brynjólfsson í sviðssetningu GRALS - Grindvíska atvinnuleikhússins. Leikstjórn annaðist Bergur Þór Ingólfsson.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir