Fjölsmiðjan er valgrein fyrir nemendur úr elstu bekkjum í Grunnskóla Grindavíkur. Námið felst aðallega í því að horft er til verklegra þátta í skólastarfinu. Markmiðið er að styðja við nemendur á þann hátt að þeir öðlist styrkan grunn í verk- og listgreinum og verða þannig undir það búnir að fara í framhaldsnám á því sviði eða öðlist færni til að takast á við þessa mikilvægu þætti í framtíðinni.
Einnig verður lagt mikið upp úr mannlegum samskiptum og að samvera í kennslustundum sé afslöppuð og heimilisleg. Þá verður lögð áhersla á skipulögð vinnubrögð og að allir öryggisþættir í verknáminu séu í lagi.
Kennsluaðferðir í fjölsmiðjunni miðast við að nám eigi sér stað við raunaðstæður og þannig dregið úr bóklegu námi. Hluti af náminu eru vettvangsferðir og fyrirlestrar um málefni sem nýtast nemendum í verkþáttum og daglegu lífi. Mikið er lagt uppúr því að samstarf sé gott milli leiðbeinenda og nemenda. Hlustað er á væntingar nemandans og tekið mið af getustigi hans. Slagorð fjölsmiðjunnar er; enginn getur allt en allir geta eitthvað.
Hugmyndafræði fjölsmiðjunnar mótast að miklu leiti af fjölgreindarkenningu Gardners. Samkvæmt kenningu Gardners eru margar greindir og allar vega þær jafn þungt og fjölsmiðjan byggir á, að allir hafa sterka hlið sem finna má innan þessara greinda. Unnið er að jákvæðri atferlismótun, virðingu fyrir margbreytileika mannanna sem leiðir til fjölbreyttra námsaðferða. Dregið er úr óæskilegri hegðun með því að þjálfa félagsfærni og gefa jákvæðri hegðun gaum með markvissum hætti.
Í Fjölsmiðju er rík áhersla lögð á:
• Stundvísi og góðar mætingar.
• Virka þátttöku og vilja til að prófa nýja hluti.
• Að hjálpa nemendum að gera hugmyndir sínar raunhæfar og að veruleika.
Fjölsmiðjan er valkostur fyrir nemendur sem:
• Vilja öðlast jákvætt viðhorf til list- og verknáms.
• Vilja tengja skólagöngu sína við þátttöku í atvinnulífi og þá aðallega á verklega sviðinu.
• Vilja auka stórlega vægi verklegra námsgreina.
• Vilja leggja stund á nám í litlum hópi þar sem sérstök áhersla er lögð á umburðarlyndi og virðingu.
ENGINN GETUR ALLT, ALLIR GETA EITTHVAÐ
Hugmyndir að uppbyggingu fjölsmiðju í Grunnskóla Grindavíkur
2010 -2011
Viðgerðarverkstæði stofnað.
Hugmyndin á bakvið verkstæðið er sú að reka það eins og lítið fyrirtæki sem gæti skilað hagnaði. Við rekstur verkstæðisins gefst fólki kostur á að læra m.a. stofnun og rekstur lítils fyritækis, viðgerðir á t.d. slátturvélum, skellinöðrum, slátturorfum og ýmsum öðrum hlutum.
Áhersla verður lögð á meðferð tækja og verkfæra. Sérstök áhersla er lögð á öryggisatriði og heilsuvernd við vinnuna.
Á verkstæðinu verður meðal annara eldri borgari úr Grindavík sem er vélstjóri, hefur allt lífið safnað reynslu og þekkingu á sínu sviði.
Eldhúshornið undirbúið og komið af stað.
Hugmyndin er sú að allir taki þátt í að innrétta og búa til fallegt, heimilislegt og notarlegt umhverfi þar sem hægt er að láta sér líða vel, baka, elda, poppa, horfa á sjónvarp, halda fundi, hlusta á tónlist, lesa frumsamin ljóð og sögur,spila syngja og hvað annað sem fólki dettur í hug.
Þar verður hægt að læra allt frá a - ö varðandi vinnu í eldhúsi og góð ráð varðandi ýmislegt sem viðkemur rekstri heimilis, t.d. hvernig nær maður blettum úr fötum?, hvernig er best að búa til hafragraut?, hvernig á að búa til sultu? og ýmislegt fleira.
Í eldhúshorninu verður meðal annara eldri borgari úr Grindavík sem hefur unnið sem húsmóðir, er sérfræðingur í öllu sem viðkemur rekstri heimilis og uppeldi barna, fjársjóður þeirra sem leita til og vilja læra.
Listasmiðja.
Þar gefst fólki kostur á að hanna og búa til listaverk eða ýmiskonar nytjahluti. Lögð er áhersla á að koma hugmyndunum frá sér á skýran hátt með teikningu eða módeli. Hugmyndin á bakvið það er sú að, hugsanlega eru einhverjir sem gætu smíðað eða tekið þátt í að framleiða verkið eða hlutinn sem um er að ræða hverju sinni og lært að smíða og vinna eftir teikningum.
Einnig er möguleiki á að mála og teikna. Hugsanlega væru einhverjir sem gætu búið til stuttmyndir, heimildarmyndir eða tekið ljósmyndir. Unnið þær í tölvum, sem hægt er að nota á ýmsum sviðum. Ef einhverjir gætu hugsað sér að vinna með tónlist í tölvu t.d. fyrir stuttmyndirnar þá gefur það möguleika á áhugaverðu samstarfi.
Það sem væri áhugavert að athuga er hvort fólk hefur áhuga á að mynda hópa sem koma sér saman um að vinna að sameiginlegri sköpun, t.d. búa til listaverk, sem getur verið farvegur fyrir nokkra miðla, t.d, stuttmynd með tónlist, búningum, handriti, leik, smíði á leikmynd og leikmunum.
Hugmyndabanki.
Opnað verður fyrir innlegg í bankann, himinháir vextir fyrir góðar hugmyndir. Úttektir eftir þörfum í samráði við bankaráð.
Húsgögn.
Hægt er að nota húsgögn sem eru til, það má laga þau og breyta eftir þörfum.
Efni.
Umhverfisvænt val á efni er það sem við ætlum að einbeita okkur að, leggja áherslu á að nota m.a. það sem fellur frá fyrirtækjum í Grindavík og athuga hvað hugmyndaflugið leggur okkur til við að vinna úr því.
Koma auga á að skapa verðmæti úr því sem aðrir henda, búa til listaverk og ýmilegt úr efni sem kostar lítið eða ekkert.
Lego.
Spennandi verkefni fyrir þá sem hafa áuga á að taka þátt í Legokepni sem hefur verið starfrækt í nokkur ár á milli grunnskóla viðsvegar um landið. Felst í því að búa til róbóta og leysa ákveðin verkefni með þeim. Tölvur eru notaðar mikið við þessa vinnu.
Það væri áhugavert ef einhverjir tækju það að sér að kynna þetta verkefni.