Skorađ á ríkisstjórn ađ tryggja eđlilegan framgang atvinnuuppbyggingar á Suđurnesju

  • Fréttir
  • 13. september 2010

Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum var haldinn í Hópsskóla í Grindavík sl. laugardag. Bryndís Gunnlaugsdóttir forseti bæjarstjórnar var kjörin í stjórn SSS og Páll Jóhann Pálsson til vara. Ögmundur Jónasson ráðherra sveitastjórnarmála ávarpaði fundargesti.  Ein ályktum var samþykkt á fundinum og var hún um atvinnumál.

Ályktunin er svohljóðandi:

„Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, haldinn í Grindavík 11. september 2010, skorar á Alþingi og ríkisstjórn að tryggja eðlilegan framgang atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum.

Tafir á afgreiðslu raflínulagna, virkjanaleyfa, skattabreytinga vegna gagnavera, leyfa til nýtingar skurðstofa og fyrirgreiðslu við hafnarframkvæmdir eru alvarleg dæmi sem hafa stórskaðað uppbyggingu Suðurnesjamanna.

Aðalfundurinn beinir þeim eindregnu tilmælum til ríkisstjórnarinnar að hún greiði leiðir til uppbyggingar nýrra atvinnutækifæra á svæðinu og að Suðurnesjamenn fái byr í seglin þegar unnið er að nýjum tækifærum í þágu íbúa.

Atvinnuleysi á Suðurnesjum er það mesta á landinu, auk þess sem meðaltekjur íbúa á svæðinu eru með því lægsta sem gerist á landinu. Þörfin fyrir uppbyggingu og ný störf er því mjög knýjandi. Fundurinn beinir þeim eindregnu tilmælum til ríkisstjórnar og Alþingis að þau standi vörð um störf á Suðurnesjum og leggist á árarnar með sveitarstjórnarmönnum, verkalýðsfélögum, atvinnurekendum og íbúum á svæðinu og stuðli að nýjum atvinnutækifærum.

Milljarða hagnaður bæði af sölu ríkisins á Hitaveitu Suðurnesja og sölu á eignum á fyrrum varnarsvæði hefur verið lagður inn í ríkissjóð án þess að Suðurnesjamenn fái notið hans til atvinnuuppbyggingar. Þetta gerist á sama tíma og hér er erfiðasta atvinnuástand á landinu og fjölbreytt og vel launuð atvinnutækifæri bíða afgreiðslu stjórnvalda.

Enn er minnt á að 1100 manns misstu atvinnu sína þegar varnarliðið fór í undanfara efnahagskreppu og að hér er enn mesta atvinnuleysi á landinu. Fjármunir, sem fengust fyrir sölu eigna á varnarsvæðinu, hafa runnið í ríkissjóð svo milljörðum skiptir í stað þess að hafa verið nýttir í skapa grunn að störfum fyrir atvinnulausa íbúa Suðurnesja.

Þau atvinnutækifæri sem unnið hefur verið að á undanförnum árum á Suðurnesjum s.s. álver, kísilver, gagnaver, ECA flugverkefni, einkasjúkrahús, Fisktækniskóli og skólasamfélagið Keilir geta skapað þúsundir starfa á næstu mánuðum og stórbætt efnahag þjóðarinnar allrar um leið og staða íbúa og sveitarfélaga á Suðurnesjum gjörbreytist til hins betra."


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!