Bryndís Gunnlaugsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Kristinn Reimarsson frístunda-og menningarfulltrúi áttu í gær fund með Sigríði Björk Guðjónsdóttur lögreglustjóra Suðurnesja og fulltrúum hennar. Fundurinn var framhald af fundi sem þessir aðilar áttu í byrjun ágúst.
Á fundinum lagði lögreglan fram tölfærði um afbrot í Grindavík fyrir árið 2009 og það sem af er ári 2010. Rætt var um sameiginlegt forvarnarstarf aðila og aukna löggæslu í Grindavík. Lögreglustjóri upplýsti að farið yrði í sérstakt átaksverkefni í Grindavík næstu 30 daga þar sem löggæsla yrði efld til muna og frá og með deginum í dag verða alltaf tveir lögreglumenn á vakt frá 14:00 á daginn og fram yfir miðnætti. Munu þeir sinna almennri löggæslu í Grindavík auk þess að sinna umferðareftirliti á Grindavíkurvegi og Reykjanesbraut. Að auki verður einn lögreglumaður í Grindavík alla fimmtudaga til að sinna forvarnarfræðslu. Með þessu fyrirkomulagi verður sýnileiki lögreglunnar í Grindavík mun meiri og löggæsla mun markvissari.
Bæjaryfirvöld fagna þessum tillögum lögreglustjóra og munu jafnhliða setja aukin kraft í forvarnarstarf sveitarfélagsins og með þátttöku samfélagsins. Samfélagið í Grindavík á að vera öruggt en til þess að það gangi eftir þurfa allir í samfélaginu að taka virkan þátt.
Nánar er fjallað um þetta átak í Járngerði sem kemur út í næstu viku.
Fulltrúar lögreglunnar og lögreglustjóri með Grindavíkurhúfu, Bryndís formaður bæjarráðs, Róbert bæjarstjóri og Kristinn frístunda- og menningarfulltrúi.