Lokahóf knattspyrnudeildar UMFG verður haldið í Eldborg laugardaginn 2. október nk. Ein vinsælasta danshljómsveitin landsins, Sagaclass, leikur fyrir dansi og þá er hið óviðjafnanlega Breiðband á meðal skemmtiatriða. Ýmis önnur skemmtiatriði verða á dagskrá, hinn eini og sanni Bibbinn mun sjá um að töfra fram veisluhlaðborð af bestu gert.
Verð pr. miða er 5.900, miðasala er í Gula húsinu. Lokahófið verður nánar auglýst síðar.