Umhverfisverðlaun Grindavíkurbæjar 2010 voru afhent með pompi og pragt í Salthúsinu. Að þessu sinni voru afhent fimm verðlaun. Hinir fjallhressu Stigamenn tóku lagið og Gunnar Tómasson sagði frá tilurð minja- og myndasýningar Þorbjarnar hf. sem fékk Umhverfisverðlaun fyrirtækja að þessu sinni.
Guðbjörg Eyjólfsdóttir, formaður umhverfisnefndar, bauð gesti velkomna og sagði frá því að nefndin hefði að þessu sinni óskað eftir tilnefningum til verðlauna. Fjölmargar ábendingar bárust nefndinni sem fór víða um bæinn og naut liðsinnis Ástu Jóhannesdóttur garðyrkjustjóra Grindavíkurbæjar.
Róbert Ragnarsson bæjarstjóri afhenti Umhverfisverðlaunin 2010, sem komu í hlut eftirfarandi:
1. Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Norðurvör 2, Matthías Grindvík Guðmundsson og Berta Grétarsdóttir.
2. Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Blómsturvellir 6, Daníel Jónsson og Birna Bjarnadóttir
3. Verðlaun fyrir ræktun við erfiðar aðstæður: Staðarhóll í Staðarhverfi - Elsa Dóra og Jóhann Líndal.
4. Verðlaun fyrir vel heppnaða viðgerð á gömlu húsi: Bergsholt, Borgarhraun 5 - Björn Steinar Sigurjónsson og Rebekka Jórmundsdóttir.
5. Verðlaun fyrir snyrtilegasta fyrirtækið: Þorbjörn hf. fyrir minja- og myndasýninguna.
Með því að smella á efstu myndina má sjá myndbrot frá verðlaunaafhendingunni.
Hér má smá myndir frá görðunum sjálfum.
Efsta mynd: Matthías Grindvík, Berta og Róbert bæjarstjóri.
Verðlaunahafar ásamt Róberti bæjarstjóra og Guðbjörgu formanni umhverfisnefndar. Á myndina vantar Elsu Dóru og Jóhann Líndal sem voru í útlöndum.
Gunnar Tómasson segir frá minja- og myndasýningu Þorbjarnar hf. sem fékk verðlaun.
Gunnar og Róbert bæjarstjóri.
Daníel og Birna ásamt bæjarstjóra.
Rebekka og Björn Steinar ásamt bæjarstjóra.