Loic Mbang Ondo varnarmaður Grindavíkurliðsins hefur skrifað undir tveggja ára samning við liðið. Hann hefur staðið sig með prýði með Grindavíkurliðinu í sumar og hefur líkað vel dvölin í bænum. Loic er tvítugur og er yngri bróðir Gilles Mbang Ondo, markahróks Grindavíkurliðsins.