Jósef Kristinn Jósefsson hefur verið valinn í U21 árs landslið Íslands sem mætir Tékkland ytra í riðlakeppni fyrir EM þann 7. september næstkomandi. Jósef hefur spilað 5 landsleiki fyrir U21 árs landsliðið og skorað eitt mark sem kom reyndar á Grindavíkurvelli í fyrra.