Íslandsmeistaramótið í fjallahjólreiðum var haldið 25. ágúst sl. við Rauðavatn. Grindvíkingurinn Björn Steinar Sigurjónsson gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari í flokki 40 til 50 ára en hann er fæddur 1963. Þá varð hann í 11. sæti í heildina af 27 keppendum.
Björn hjólar fyrir Hjólreiðafélag Reykjavíkur. Hann var 1 klukkustund og rétt rúmar 35 mínútur að klára sína leið.