Boðað hefur verið til ráðstefnu um sjávarútveg á Grand Hóteli í Reykjavík dagana 6. og 7. september næstkomandi undir yfirskriftinni Sjávarútvegsráðstefnan - Hafsjór tækifæra. Á vefsíðu ráðstefnunnar, www.sjavarutvegsradstefnan.is, er hægt að sækja dagskrá og aðrar upplýsingar.
Í kynningu á ráðstefnunni segir m.a. að hugmyndin með henni sé „að skapa samskiptavettvang allra þeirra sem koma að sjávarútvegi á Íslandi" og einnig að „stuðla að faglegri og fræðandi umfjöllun um sjávarútveg."