Grunnskóli Grindavíkur verður settur í dag. Búið er sameina grunnskólann og Hópsskóla í eina stofnun. Athygli er vakin á því að eitt símanúmer er fyrir báða skólana: 420 1150. Þangað skal m.a. tilkynna forföll nemenda í 1. til 10. bekk og leita almennra upplýsinga.
Heimasíða Hópsskóla hefur verið lögð niður og er ný sameiginleg heimasíða í smíðum fyrir Grunnskóla Grindavíkur.
Skólasetningin í dag er þannig:
Kl. 9.30 4., 5., 6. og 7.bekkur í Grunnskólanum
Kl. 10.30 1., 2., 3. bekkur í Hópsskóla
Í dag mæta nemendur í 8., 9. og 10.bekk í viðtöl ásamt foreldrum. Til þessara viðtala var boðað með bréfi.
Kennsla hefst hjá öllum árgöngum nema 1.bekk samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 25. ágúst, þann dag mæta nemendur 1. bekkjar í viðtöl.
Skráning í Skólasel fer fram í Skólaseli mánudaginn 23. ágúst frá kl. 13.00 og þriðjudaginn 24. ágúst kl. 8.00 - 15.00. Innritun nýrra nemenda fer fram á skrifstofu skólans við Ásabraut dagana 17. - 21. ágúst.