Hver er þessi nýi leikmaður sem er á myndinni með Ólafi Erni Bjarnasyni, þjálfara Grindavíkur? Þetta er reyndar Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, sem verður heiðursgestur á leik Grindavíkur og FH í Pepsideild karla sem fram fer í kvöld á Grindavíkurvelli kl. 19:15.
Róbert er knattspyrnuáhugamaður og var myndin tekin í gær þegar Ólafur Örn Bjarnason skrifaði formlega undir sem þjálfari Grindavíkur til næstu fjögurra ára. Róbert, sem sleit barnsskónum í Keflavík, var að sjálfsögðu klæddur í Grindavíkurbúning sem hann hann fékk að gjöf frá knattspyrnudeildinni.
Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna á Grindavíkurvöll og styðja við bakið á strákunum sem berjast nú fyrir lífi sínu í deildinni.