Grindavík mćtir ţremur efstu liđunum

  • Fréttir
  • 18. ágúst 2010

Eftir smá hlé hefur meistaraflokkur Grindavíkur leik að nýju annað kvöld í Pepsideild karla þegar nýkrýndir bikarmeistarar FH koma í heimsókn á Grindavíkurvöll kl. 19:15. Óhætt er að segja að Grindavík eigi erfiða leiki fram undan því okkar menn mæta þremur efstu liðunum. Á sunnudaginn heimsækir Grindavík lið Eyjamanna heim og mánudaginn 30. ágúst kemur Breiðablik í heimsókn.

FH-ingar hafa löngum reynst Grindvíkingum erfiðir á Grindavíkurvelli. Með sigri hefur FH tækifæri til þess að blanda sér fyrir alvöru í toppbaráttuna en Grindavík þarf svo sannarlega á öllum stigunum að halda í fallbaráttunni. Hjá Grindavík eru allir klárir í slaginn nema að Loic Mbang Ondo verður í leikbanni.

Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna á völlinn annað kvöld og styðja við bakið á strákunum.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál