Guđlaugur hćttir viđ ađ hćtta

  • Fréttir
  • 16. ágúst 2010

Stórskyttan Guðlaugur Eyjólfsson hefur ákveðið að hætta við að hætta og verður með Grindavíkurliðinu í körfubolta næsta vetur undir stjórn Helga Jónasar Guðfinnssonar. Töluverðar breytingar verða hins vegar hjá liðinu því Arnar Freyr Jónsson er farinn til Danmerkur, Brenton Birmingham hefur lagt skóna á hilluna og Darrel Flake farinn í Skallagrím.

Tveir Grindvíkingar hafa bæst við í hópinn frá því í fyrra, þeir Helgi Björn Einarsson og Marteinn Guðbjartsson. Þá hefur Kaninn Andre Smith bæst í hópinn.

Hjá kvennaliðinu er Jovana Stefánsdóttir farinn til Þýskalands og Ingibjörg Jakobsdóttir í Keflavík. Leitað er að Kana og frekari liðsstyrk.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir