Grindavík tekur á móti Fram á Grindavíkurvelli kl. 19:15 í kvöld, fimmtudag, í Pepsideild karla. Ólafur Örn Bjarnason þjálfari Grindavíkur stýrir liðinu í sínum fyrsta heimaleik í deildinni og mun jafnframt leika með liðinu. Bróðir hans Guðmundur Bjarnason gekk til liðs við Grindavíki frá Reyni Sandgerði í síðustu viku en Grindavíkur hefur lánað Markó Valdimar Stefánsson til Njarðvíkur út þessa leiktíð.
Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna á þennan mikilvæga leik á Grindavíkurvelli. Fram verður án fyrirliðans Kristjáns Haukssonar sem er í leikbanni.