Það var flottur hópur frá Grindavík sem mætti á Unglingalandsmótið í Borgarnesi um síðustu helgi en aldrei hafa fleiri farið frá Grindavík. Keppendur í nafni UMFG voru 30 talsins en af þeim gistu um 20 á tjaldstæðinu og voru alls 77 keppendur og gestir á tjaldstæði Grindvíkinga. Keppendurnir voru allir Grindvíkingum til sóma innan vallar sem utan.
Keppendur stóðu sig frábærlega og náðum við 2 liðum í fjögurra liða úrslit í flokki 13-14 ára í körfunni eldra liðið varð í 2 sæti en það yngra í 4 sæti.
Þeir keppendur frá Grindavík sem kepptu sem einstaklingar í körfunni komust allir í úrslit sem sýnir hvað við eigum marga efnilega körfuboltasnillinga. Sumir úr körfuboltaliðunum kepptu í Golfi Frjálsum og Knattspyrnu og stóðu sig vel.
Strákarnir sem kepptu í knattspyrnu urðu í 12 sæti en þar vakti einna helst athygli hinn ungi Viktor Hauksson sem stríddi oft strákum sem hann náði rétt svo uppí nafla.
Í Golfi kepptu
11-13 ára
Aron Snær Friðriksson 13. Sæti
Ingvi þór Guðmundsson 15. Sæti
Kári Jónsson 21 sæti
14-15 ára
Lárus Guðmundsson 6. Sæti
Jón Axel Guðmundsson 8. Sæti
Þrír keppendur kepptu í frjálsum íþróttum en það voru
Kristófer Rúnar Ólafsson
Langstökk 4,35m 5. Sæti
Hástökk 1,36m 9. Sæti
Kúluvarp 7,57m 13. Sæti
Spjótkast 34,82m 4. Sæti
100m hlaup 14,52sek 10. Sæti
Aðalsteinn Már Pétursson
Kúluvarp 9,04m 7. Sæti
Spjótkast 29,16m 9. Sæti
100m hlaup 14,53sek 11. Sæti
Ingibjörg Sigurðardóttir
Hástökk 1,36m 11. Sæti
Tveir ungir judostrákar kepptu í íslenskri Glímu og stóðu sig með sóma
Björn Lúkas keppti í flokki 15-16 ára og náði 3. Sæti með 3 vinninga
Almar Reginn Bjornsson keppti í flokki 17-18 ára og varð einnig í 3. Sæti með 1 vinning en Björn keppti einnig í þeim flokki og meiddist í fyrstu glímu.
Í sundinu kepptu 5 krakkar sem stóðu sig með prýði en þar náðust 5 verðlaun 3 brons og 2 silfur
En árangurinn varð sem hér segir.
Erla Sif Arnardóttir
50m Skriðsund 33.21 *10. Sæti
100m Bringusund 1:30.01 4. Sæti
50m Baksund 44.24 11. Sæti
100m Skriðsund 1:15.00 5. Sæti
50m Flugsund 39.15 8. Sæti
50m Bringusund 40.61 6. Sæti
100m Fjórsund 1:24.57 7. Sæti
2x í öðru sæti í boðsundi með Breiðablik (Hnökkunum)
Elvar Eyfjörð
50m Skriðsund 30.60 9. Sæti
100m Skriðsund 1:09.80 9. Sæti
50m Flugsund 36.77 10. Sæti
50m Bringusund 45.74 6. Sæti
Margrét Rut Reynisdóttir
Var veik fyrri daginn og synti ekki
50m Flugsund 42.15 6. Sæti
50m Bringusund 45.48 4. Sæti
100m Fjórsund 1:33.53 7. Sæti
Þriðja sæti í boðsundi með blönduðu liði (speedo)
Alexander Már Bjarnason
50m Skriðsund 43.83 6. Sæti
100m Bringusund 1:58.69 3. Sæti
100m Skriðsund 1:42.21 4. Sæti
50m Bringusund 51.67 3. Sæti
Eyrún Eyfjörð Svanþórsdóttir
50m Skriðsund 52.05 18. Sæti
100m Skriðsund 2:00.74 9. Sæti
50m Bringusund 1:02.87 14. Sæti
Fleiri myndir á heimasíðu Bjarna Más hér.