Ingibjörg í Keflavík

  • Fréttir
  • 4. ágúst 2010

Grindavíska körfuknattleikskonan Ingibjörg Jakobsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við kvennalið Keflavíkur. Ingibjörg sleit krossbönd snemma á síðasta keppnistímabili sem gerði það að verkum að hún lék ekki meira með liðinu. Ingibjörg er öll að koma til í meiðslum sínum og gert er ráð fyrir að hún verði búin að ná sér að fullu þegar næsta leiktíð hefst.

Ingibjörg er nýorðin tvítug, 173 cm á hæð og á að baki 12 A-landsleiki með kvennalandsliði Íslands. Einnig hefur hún spilað með 18 ára og 16 ára landsliðunum. Hún mun koma til með að styrkja kvennalið Keflavíkur í baráttunni næstu tímabil.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir