null
517. Fundur
Skipulags- og byggingarnefndar Grindavíkur
var haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa,
mánudaginn 26. júlí 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Unnar Á Magnússon, Vilhjálmur Árnason (VÁ), Helgi Þór Guðmundsson (HÞG), Svava Björk Jónsdóttir (SBJ) og Margrét Erlingsdóttir (ME).
Fundargerð ritaði: Ingvar Þ. Gunnlaugsson, Forstöðumaður Tæknideildar
Dagskrá:
1. 1004028 - Erindi frá knattspyrnudeildinni.
Ingvar Gunnlaugsson f/h Grindavíkurbæjar, sækir um byggingarleyfi á viðbyggingu við búningsklefa knattspyrnudeildar við Austurveg 3. samkv. teikningum frá Sigurbjarti Loftssyni. dags.14.04.10
Nefndin leggur til að forstöðumaður tæknideildar grenndarkynni byggingarleyfi fyrir íbúum Austurvegar 12-18 sbr. 7.mgr. 43. greinar skipulags- og byggingarlaga.
2. 0905059 - Skotfélag Grindavíkur óskar eftir aðstöðu fyrir félagsmenn til skotæfinga.
Þann 17. maí var skotfélagið Markmið stofnað í Grindavík með það í huga að koma upp aðstöðu fyrir félagsmenn til skotæfinga, þar sem löglegt svæði væri viðurkennt af lögreglu og bæjaryfirvöldum í Grindavík.
Óskað er eftir svæði innan bæjarmarkanna til uppbyggingar fyrir skotæfingar.
Nefndin samþykkir að vinna áfram að því að finna svæði fyrir skotfélagið Markmið og taka málið aftur fyrir á næsta fundi nefndarinnar.
3. 1004035 - Ósk um breytingu á skráningu Ásabraut 15 og 17 úr einbýlishúsi í tvíbýlishús.
Hrafn Sigvaldason og Margrét Ragna Arnardóttir óska eftir því að fá að skipta fasteignunum sínum að Ásabraut 17 og Ásabraut 15 úr einbýli yfir í tvíbýli.
Nefndin hafnar erindinu á þeim forsendum að í upphafi hafi hverfið verið hannað sem einbýlishúsahverfi, jafnframt er ekki gert ráð fyrir fleiri íbúðum, né bílastæðum í hverfinu.
4. 1004032 - Reglugerð um skilti í Grindavíkurbæ
Forstöðumaður tæknideildar leggur fyrir nefndina tillögu að reglugerð um skilti í Grindavík
Nefndin samþykkir tillöguna, jafnframt óskar nefndin eftir því að það verði fundin staðsetning í bænum fyrir auglýsinga- og þjónustuskilti og eftir samstarfi við umhverfis-, atvinnu- og ferðamálanefnd.
5. 1004030 - Gjaldskrá byggingaleyfis- og þjónustugjalda í Grindavíkurbæ
Forstöðumaður tæknideildar leggur fyrir nefndina tvær tillögur að gjaldskrá fyrir byggingarleyfis- og þjónustugjöld
Nefndin samþykkir tillöguna
6. 1007062 - Förgun Bláalónsvökva, brýnt úrlausnarverkefni.
HS-Orka óskar eftir leyfi Grindavíkurbæjar fyrir því að veita Bláa lóns vökva í sprungurein vestan bílastæða Bláa Lónsins sbr. meðfylgjandi minnisblaði Verkís dags. 25.06.2010
Nefndin leggur til að formaður nefndarinnar ásamt fulltrúa úr byggingarnefnd, umhverfisnefnd og forstöðumanni tæknideildar ræði við málsaðila til þess að vinna að farsældri niðurstöðu í málið.
7. 1007069 - Umsókn um byggingarleyfi Ránargata 4
Í upphafi fundarins óskaði formaður eftir því að taka þetta erindi inn sem afbrigði inn á dagskrá
Samþykkt samhljóða
Helgi S. Kristinsson óskar eftir byggingarleyfi til þess að klæða hús sitt að utan skv. teikningum verkfræðistofunnar Verkmáttur dags. 23.07.2010
Nefndin samþykkir erindið.
8. 1007070 - Umsókn um byggingarleyfi Staðarsund 10
Í upphafi fundarins óskaði formaður eftir því að taka þetta erindi inn sem afbrigði inn á dagskrá
Samþykkt samhljóða
Formaður vék af fundi við afgreiðslu málsins
Pétur Gíslason f/h Stjörnufisks sækir um byggingarleyfi á viðbyggingu við iðnaðarhúsnæði að Staðarsundi 10. samkv. teikningum frá Tækniþjónustu SÁ ehf dags.21.07.10
Nefndin samþykkir erindið, með fyrirvara á samþykki nágranna
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:05
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________
___________________________ ___________________________