Unglingarnir í Vinnuskólanum hafa staðið í ströngu í sumar við að fegra bæinn. Sláttu- og garðyrkjustörf eru þar ofarlega á blaði og þar er öryggið á oddinum. Í fyrra varð alvarlegt sláttuvélaslys í Vinnuskólanum en markvisst hefur verið unnið í öryggismálum í sumar. Unglingarnir fara á öryggisnámskeið og þeir sem vinna við sláttustörf eiga að vera undantekningalaust í öryggisskóm.
Myndin að ofan var tekin í morgun þar sem slegið var við íþróttahúsið. Pilturinn er í öryggisskóm og þar sem slegið er í halla notar hann bandspotta í sláttuvélina samkvæmt vinnureglum.
Í gær fengu unglingarnir í Vinnuskólanum reyndar óvæntan glaðning en þá gengu þau í Bláa lónið og skelltu sér ofan í í góða veðrinu og sleiktu sólina. Síðan gengu þau aftur til baka.