Ýmislegt verður um að vera á öðrum degi náttúruviku á Suðurnesjum. Meðal annars verður sjóstangveiði af bryggjunni í Garði, fjöruskoðun í Sandgerði og gönguferð í Reykjanesbæ. Dagskrá dagsins er eftirfarandi:
Mánudagur 26. júlí
Grindavíkurbær - 11:00 - 18:00. Saltfisksetur Íslands.
Til sýnis uppstoppaðir fuglar auk hefðbundinnar saltfisksýningar safnsins og fallegs handverksmarkaðar.
Sandgerðisbær - 09:00 - 17:00. Fræðasetrið.
Til sýnis skelja og kuðungasafn, lifandi sjávardýr, uppstoppaðir fuglar og margt fleira. Fjörulíf. Alla dagana geta gestir fengið búnað til að fara í fjöruferðir og kynnst fjölbreyttu lífríki fjörunnar.
Maðurinn í náttúrunni. Með listaverkinu "Óður til hafsins" minnir unga fólkið okkur á umgengni okkar við náttúruna. Til sýnis í anddyri Fræðasetursins.
Fuglar á Sandgerðistjörn. Fuglaskoðunarhús til afnota fyrir alla.
Nánari upplýsingar í afgreiðslu Fræðasetursins og í síma: 423 7551. Opnunartímar: Virka daga: 09:00 - 17:00. Helgar: 13:00 - 17:00.
Sveitarfélagið Garður - kl. 10:00. Sjóstangveiði af bryggjunni; Mæting við bryggjuna kl. 10:00. Leiðsögumaður Oliver Keller/Pálmi Sturluson. Leiðsögnin tekur um 2 tíma. Allir áhugasamir velkomnir og er leiðsögnin ókeypis. Þátttakendur hafi með sér veiðistangir og það sem þarf til veiðanna.
Sandgerðisbær - kl. 17:00 - 19:00. Fjöruskoðun.
Náttúrustofa Reykjaness býður upp á fjöruskoðun í fjörunni við innsiglingarmerkið sunnan við kjúklingabúið. Umsjón Sigríður Kristinsdóttir. Sagt verður frá kortlagningu fjörunnar á Reykjanesskaga og lífríki fjörunnar skoðað. Mæting við innsiglingarmerkið sunnan við kjúklingabúið. Klæðnaður eftir veðri. Allir velkomnir.
Reykjanesbær - kl. 20:00. Ganga.
Gengið um Rósaselsvötn með Konráði Lúðvíkssyni fyrrum formanni Skógræktarfélags Suðurnesja. Sagt verður frá skipulagi skógræktar á svæðinu og hugmyndum um verndun Rósaselsvatna. Mæting við Duushús. Ekið að Rósaselsvötnum. Gangan tekur 2 klst. Allir velkomnir - enginn aðgangseyrir.