ORF Líftćkni vekur sífellt meiri athygli

  • Fréttir
  • 10. júlí 2010

ORF Líftækni sem er með gróðurhús sitt í Grindavík vekur sífellt meiri athygli en forsíðufrétt er um vöxt fyrirtækisins í Fréttablaðinu í dag. ,,Við getum orðið stórfyrirtæki á íslenskan mælikvarða innan skamms tíma," segir Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri ORF Líftækni við Fréttablaðið. ,,Við erum að fara inn á lyfjaþróunarmarkaðinn. Þar erum við í viðræðum við indverska fjárfesta um að fara með okkur í stórt verkefni."

 

ORF Líftækni hefur tvöfaldað fjölda starfsfólks frá hruni. Erlendir fagfjárfestar hafa gefið fyrirtækinu innspýtingu með nokkur hundruð milljóna króna framlagi. Fyrirtækið stefnir á stórfellda akuryrkju þar sem erfðabreytt bygg yrði ræktað til framleiðslu

á líftæknivörum. Það eina sem stendur í veginum er úrskurður umhverfis-ráðherra um útiræktunarleyfi, sem Umhverfisstofnun veitti fyrirtækinu.

Fyrirtækið framleiðir sérvirk prótein sem fyrirfinnast í mannslíkamanum. Til þessa er fræ byggplöntunnar nýtt sem verksmiðja. Próteinin nýtast til læknisrannsókna, lyfja- og snyrtivöruframleiðslu. Af þeim 130 próteinum sem fyrirtækið framleiðir eru 38 seld til útlanda. Eitt þeirra er selt hér á landi í húðdropum frá Sif Cosmetics, dótturfyrirtæki ORF.

Heimsmarkaðurinn með próteinin,ef lyf eru undanskilin, er um einn milljarður Bandaríkjadala á ári, eða um 125 milljarðar króna. Markaðurinn fyrir eitt þeirra próteinlyfja sem þegar er komið á markað er hins vegar 625 milljarðar íslenskra króna á ári.

Framleiðsla ORF tengist nýrri læknisfræði, svokallaðri vefjasmíði, þar sem próteinin eru nýtt við líffærasmíði. Þegar hefur verið búin til þvagblaðra. Einnig hjartalokur og vélinda. "Þessu má líkja við að hægt sé að smíða varahluti í menn," segir Björn.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir