Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur hófst í gær. Aðstæður voru nokkuð erfiðar og var skor keppenda í takt við það. Norðan strekkingur en þurrt og fremur hlýtt. Björn Steinar Brynjólfsson stal senunni í gær því hann gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 13. braut. Hann lýsir atvikinu þannig á heimasíðu GG:
„Ég var að hugsa um að nota PW en þar sem vindurinn stóð verulega með brautinni, ákvað ég að nota sandjárnið. Boltinn lenti nokkra metra frá holunni og hélt ég bara að hann væri að fara framhjá þegar hann fékk hliðarhopp og fór beint í holuna."
Félagar hans í ráshópnum, þeir Páll Axel Vilbergsson og Einir Logi Eiðsson voru allan tímann með það á hreinu að þessi færi í holuna. Björn Steinar spilar í 3. flokki og lék fyrsta hringinn á 100 höggum og er í 3. sæti.
Staðan í meistaraflokki karla þessi eftir fyrsta hring af fjórum:
1. Davíð Arthur Friðriksson 78
2. Jóhann Freyr Einarsson 81
3.-4. Leifur og Ingvar Guðjónssynir 82
Staðan í meistaraflokki kvenna er þessi:
1. Fanný Þóra Erlingsdóttir 96
2. Kristín I. Mogensen 97
3. Dagmar Jóna Elvarsdóttir 109
Sjá nánar á heimasíðu GG.