Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum í Grindavík býður upp á ýmis námskeið í haust og vetur. Skrifstofuskólinn Grindavík hefst 1. ágúst nk. en þar er megináhersla á tölvu- og upplýsingatækni, bókhald, verslunarreikning og ensku auk þjónustu og samskiptaáfanga. Námið er 240 kennslustundir og má meta til allt að 18 eininga í framhaldsskólum. Hentar vel þeim sem vilja styrkja sig fyrir margvísleg störf á skrifstofum.
Kennt er í aðstöðu MSS í Grindavík.
Verð miðast við fjölda þátttakanda. Hefst þegar næg þátttaka næst í hóp. Sjá nánar hér .
Þeir sem vilja kynna sér námsframboðið næsta vetur geta kynnt sér það hér .