Í sumar hafa leikskólakrakkar verið á fótboltaæfingum hjá þjálfurunum Pálmari Erni Guðmundssyni og Hólmfríði Samúelsdóttur á æfingasvæðinu við Gula húsið. Krakkarnir eru á aldrinum 3-5 ára og byggjast æfingarnar á leikjum og að krakkarnir fái að kynnast boltanum. Líf og fjör er á æfingunum eins og nærri má geta en áhuginn og gleðin skín úr andlitunum.
Æfingarnar eru á mánudögum og þriðjudögum kl. 16:30 og eru allir leikskólakrakkar að sjálfsögðu velkomnir. Forráðamenn eru beðnir að vera með þeim sem eru að koma á sína fyrstu æfingu.