Annað námskeið knattspyrnuskóla UMFG og Lýsis ns hefst mánudaginn 5. júlí og stendur í þrjár vikur. Kennt er alla virka daga nema fimmtudaga og mæting er við Gula húsið. Lögð er áhersla á skemmtanagildi fótboltans og að allir fái verkefni sér við hæfi. Kennd eru öll helstu grunnatriði fótboltans, auk leikja, þrauta og æfinga og mikil áhersla lögð á að byggja upp góðan anda í skólanum.
Krakkar 10 ára og yngri (fædd 2000 og seinna) æfa frá kl. 13:00 - 14:00.
Krakkar 11 - 13 ára (fædd ´97, ´98 og ´99) æfa frá klukkan 09:00 - 10:00.
Skólastjóri beggja hópa er Eysteinn Hauksson, yfirþjálfari yngri flokka. Eysteinn var lengi leikmaður meistaraflokks og hefur nánast óslitið verið skólastjóri knattspyrnuskólans síðan árið 2003. Hann hefur lokið KSÍ V þjálfarastigi.
Verð fyrir tólf skipti er kr. 3.500.- og innifalið í því er gjöf og grillveisla. Einnig má borga kr. 400.- fyrir stakar æfingar. Skráning er við mætingu.
ALLIR VELKOMNIR!