Birtingarmyndir áróđurs

  • Fréttir
  • 2. júlí 2010

Guðbergur Bergsson rithöfundur opnar sem kunnugt er sýningu í Saltfisksetrinu í Grindavík á morgun, þar sem hann sýnir áróðursveggspjöld sem hann hefur safnað í gegnum tíðina á ferðalögum sínum víða um heim.  ,,Ég er að fjalla um eðli áróðurs og hliðstæðar birtingarmyndir hans," segir Guðbergur við Fréttablaðið. 

Á sýningunni, sem verður opnuð á morgun, verða meðal annars áróðursveggspjöld úr einkasafni Guðbergs til sýnis.

,,Þetta eru gömul veggspjöld sem ég hef safnað í 35 ár þegar ég hef dvalist erlendis, sum allt frá tímum borgarastyrjaldarinnar á Spáni; Sovétríkjunum, Ítalíu, Portúgal og nýlendum þess, Mósambík og Angóla og víðar sem endurspegla ástandið sem var í þessum löndum," útskýrir Guðbergur en tekur fyrir að söfnunin sé áhugamál heldur hafi mörg spjaldanna rekið á fjörur hans fyrir einskæra tilviljun.

Hugmyndina að sýningunni segist hann hafa fengið í heimsókn til Berlínar fyrir nokkrum árum.

,,Þar var í gangi svipuð sýning en sú einblíndi aðeins á áróður nasista auk þess sem lítið af útskýringum fylgdi með. Ég tek hins vegar mun fleiri dæmi, læt útskýringar fylgja með og leiði gestina í gegnum sýninguna við opnun hennar. Auk þess verður sýnd frægasta áróðursmynd allra tíma, Sigur viljans eftir Leni Riefenstahl."

Guðbergur segir að áróðursveggspjöld séu merkileg fyrir ýmsar sakir og meðal annars afhjúpi þau sögu þjóða. ,,pjöldin sýna til dæmis hver fjárhagsleg staða þessara þjóða var á tilteknum tíma; sum eru gerð af vanefnum meðan einhverjum fjármunum hefur verið varið í önnur. Eins leiða þau í ljós hliðstæður í áróðri pólítískra andstæðinga. Einræðisherrar og stjórnmálaleiðtogar andstæðra fylkinga, eins og Stalín og Roosevelt fá svipaða glansmeðferð auk þess sem þjóðirnar og ólík stjórnmálaöfl tefla þarna fram sínum táknum í áróðursskyni."

Að sögn Guðbergs á þessi sýning sérstakt erindi til Íslendinga. ,,Þeir hafa aldrei lært að skilgreina hvað áróður er. Gott dæmi um það er bókin Vinnan göfgar manninn sem náði vinsældum þegar hún kom út hér fyrir löngu þótt hún sé eitt mesta áróðursrit sem hefur verið skrifað um vinnuþrælkun."

Sýningin verður opnuð á morgun klukkan 14 og stendur yfir til 26. júlí.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!