Skráning er hafin í meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur sem er hápunktur golfsumarsins. Skráningarblöð eru í skálanum og einnig á netinu. Hér má sjá allar helstu upplýsingar:
Kvenna- og öldungaflokkur leika þrjá daga og kostar 5.500 kr
Konurnar leika miðvikudag, föstudag og laugardag (fastir rástímar eru föstudag og laugardag).
Öldungarnir leika miðvikudag, fimmtudag og laugardag (fastir rástímar eru fimmtudag og laugardag).
Meistaraflokkur karla til og með 4. flokki leika fjóra daga og kostar 7.000 kr
Meistaraflokkur hefur fasta rástíma alla daga en 1.-4. flokkur fasta rástíma föstudag og laugardag.
Flokkaskipting eftir forgjöf:
mfl. karla 0-7,9
1. fl. karla 8-12,9
2. fl. karla 13-18,9
3. fl. karla 19-24,9
4. fl. karla 25 og uppúr
Mótanefnd áskilur sér rétt til breytinga m.t.t. fjölda skráninga og skiptingar milli flokka.
Innifalið í mótsgjaldi verður lokahóf Meistaramótsins sem verður haldið á Salthúsinu laugardagskvöldið þann 11. júlí.
Boðið upp á þriggja rétta máltíð og að hófinu loknu verður dansleikur á Salthúsinu og félagar greiða 500 kr. á dansleikinn.
Leikdagar hjá unglingum verða miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur (lokahóf hjá þeim verður föstudagskvöldið 10. júlí) og kostar kr 3.000.
Skráningu lýkur mánudaginn 5. júlí kl. 18:00