Grindavíkurstúlkur töpuðu sínum fyrsta heimaleik í sumar þegar Íslandsmeistarar Vals komu í heimsókn í gærkvöldi. Valur vann 2-0 en engu að síður var frammistaða Grindavíkurliðsins mjög góð en Valur lenti í miklum vandræðum með að brjóta sterka vörn Grindavíkur á bak aftur. Valur er í efsta sæti deildarinnar með 20 stig en Grindavík í 7. sæti með 11 stig.
Á fótbolta.net segir um leikinn:
,,Fyrir leikinn urðu tíðindi í leikmannamálum því Ása Dögg Aðalsteinsdóttir markvörður sem hefur verið á láni hjá Grindavík frá Val skipti óvænt aftur yfir í Val í vikunni en var samt ekki í leikmannahópnum í kvöld.
Þá mátti Grindavík ekki nota Maríu Rós Arngrímsdóttur varnarmann sinn sem hefur þótt standa sig vel með liðinu þar sem hún er á láni frá Val og félagið vildi ekki leyfa henni að spila.
Freyr Alexandersson þjálfari Vals gerði tvær breytingar á liði sínu því Katrín Jónsdóttir og Rakel Logadóttir voru tæpar vegna meiðsla svo þær sátu á varamannabekknum þar til í síðari hálfleik. Pála Marie Einarsdóttir sem var í banni í síðasta leik og Andrea Ýr Gústavsdóttir leystu stöðu þeirra.
Valur komst yfir á 14. mínútu leiksins. Hallbera Guðný Gísladóttir fór þá upp vinstri kantinn og sendi boltann fyrir markið með hægri fæti yfir á fjærstöngina þar sem Björk Gunnarsdóttir var komin og skallaði í markið.
Bæði lið fengu sín færi en Valsliðið var þó líklegra til að skora en til dæmis átti Hallbera gott skot sem fór í þverslá á 25. mínútu og Björk átti gott skot á 49. mínútu sem Helen Alderson varði vel.
Björk bætti svo öðru marki við á 84. mínútu með skalla en hún fylgdi þá eftir frákasti eftir að skot frá Valsmanni hafði verið varið.
Varnir liðanna stóðu sig vel í kvöld. Hjá gestunum í Val voru miðverðirnir Pála Marie Einarsdóttir og Málfríður Erna Sigurðardóttir mjög sterkar og Dóra María Lárusdóttir einnig mjög góð.
Hjá Grindavík átti Bentína Frímannsdóttir enn einn stórleikinn í sumar og einhverjir höfðu á orði að hún ætti tilkall í landsliðið með frammistöðu sinni í sumar auk þess sem Helen Alderson markvörður stóð sig mjög vel.
Dómarateymið á Grindavíkurvelli voru allt konur. Guðrún Fema Ólafsdóttir var dómari og henni til aðstoðar þær Bryndís Sigurðardóttir og Jovana Cosic. Þær leyfðu mikið en nokkur harka var í leiknum og ekki mikið flautað."