Opnaður hefur verið vefurinn www.visitgrindavik.is sem er ætlaður ferðamönnum sem vilja kynna sér hvað er helst á boðstólum í Grindavíkurbæ. Vefurinn er á ensku og íslensku og unnið er að því að hafa hann einnig á þýsku. Á vefnum er að finna ýmsar upplýsingar um ferðaþjónustuaðila og ýmsa þjónustu í Grindavík, kynningarmyndbönd, bæklinga sem hafa verið gefnir út og ýmislegt fleira. Vefurinn er hluti af www.grindavik.is
Þeir sem koma að ferðaþjónustu með einum eða öðrum hætti í Grindavíkurbæ og telja sig eiga heima á www.visitgrindavik.is eru hvattir til þess að senda upplýsingar á heimasidan@grindavik.is. Jafnframt eru allar nánar upplýsingar og ábendingar vel þegnar á sama netfang.