Vinnuskóli Grindavíkur hélt grillveislu í morgun fyrir unglingana sem þar vinna en veislan fór fram við Hópsskóla. Unglingarnir í Vinnuskólanum hafa aldrei verið fleiri eða 180 en það eru nemendur í 8. til 10. bekk ásamt öllum 17 og 18 ára sem sækja um vinnu. Starfsemi Vinnuskólans hefur gengið vel undir öruggri stjórn Páls Vals Björnssonar.
Verkefni Vinnuskólans eru af ýmsum toga en aðallega er unnið að því að hreinsa bæinn, gróðursetja og ýmislegt fleira.
Myndirnar voru teknar í grillveislunni í morgun. Með því að smella á efstu myndina má sjá myndband frá grillveislunni.
Krökkunum á leikjanámskeiði Grindavíkurbæjar ásamt leiðbeinendum var einnig boðið í grillveisluna.