Háhitasvæðið við Gunnuhver á Reykjanes í landi Grindavíkubæjar hefur verið opnað að nýju fyrir ferðamenn eftir þriggja ára lokun. Almannavarnir lokuðu svæðinu af öryggisástæðum eftir að aukin virkni hljóp í hverinn með þeim afleiðingum að hann breiddi úr sér, eyðilagði útsýnispall og tók í sundur veginn. Búið er að byggja nýja glæsilega útsýnspalla fyrir ferðamenn á svæðinu og er þar jafnframt aðgengi fyrir fatlaða. Þar er hægt að sjá og heyra orkuna brjótast úr iðrum jarðar.
Svæðið við Gunnuhver hefur breyst mikið frá því fyrir þremur árum. Þar hefur myndast stærsti leirhver á Íslandi með 20 metra gígop. Mikið gufuútstreymi er á háhitasvæðinu með fjölda gufu- og leirhvera.
Ferðamálasamtök Suðurnesja höfðu frumkvæðið að framkvæmdunum en þær eru fjármagnaðar af Grindavíkurbæ, Reykjanesbæ og Ferðamálastofu. Göngustígur um svæðið á milli útsýnispallanna tveggja var lagður og kostaður af HS Orku. Verkfræðistofa Suðurnesja sá um eftirlit með verkinu en Pétur Jónsson landslagsarkitekt sá um hönnun svæðisins og Grindin ehf. í Grindavík sá um smíði pallanna. Öryggismál á svæðinu voru unnin í samvinnu við lögreglustjórann og lögregluna á Suðurnesjum.
Með því að smella á stóru myndina efst má sjá myndband frá athöfninni við Gunnuhver.
Efsta mynd: Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Guðmundur Pálsson formaður bæjarráðs og Bryndís Gunnlaugsdóttir forseti bæjarstjórnar við vígsluna við Gunnuhver í dag.
Klippt á borða á nýju útsýnispöllunum við Gunnuhver. Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, Kristján Pálsson framkvæmdastjóri Ferðamálasamtaka Suðurnesja, Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Guðmundur Pálsson formaður bæjarráðs Grindavíkurbæjar.