Í síðustu tveimur leikjum hafa Gabonbræðurnir Gilles og Loic Mbang Ondo verið í sviðsljósinu með knattspyrnuliði Grindavíkur. Sá eldri, Gilles, skoraði tvö mörk í báðum leikjunum á meðan Loic kom inn á sem varamaður. Í báðum leikjunum kom Loic inn í stöðunni 1-2 en eftir innkomu hans breyttist staðan í 3-2 fyrir Grindavík. Á heimasíðu UMFG er viðtal við þá bræður:
Hvernig tilfinningin eftir sigurleikinn í gær?
Það er gott að vinna tvo leiki í röð, mjög gott fyrir hausinn á manni. Næst er það Fylkir og ef við vinnum hann þá förum við að komast úr fallbaráttunni. Við trúum því að við séum betri en að vera á botninum.
Nú hefur þú skorað 3 mörk eftir að Loic hefur komið inn á í síðustu tveimur leikjum, gefur hann þér eitthvað extra boost?
Hann er góður leikmaður, mikið efni. Hann hjálpar okkur alltaf þegar hann kemur inn á.
Loic, þú hefur núna spilað sem aftasti varnarmaður, á miðjunni og á hægri kant í sumar, hvaða staða á best við þig?
Ég er bestur annað hvort sem miðvörður eða aftarlega á miðjunni eins og ég spilaði í gær.
Hefur mikið breyst eftir að Ólafur Örn tók við þjálfunni?
Við héldum fyrir komu hans að vandamálið væri í fótunum en það var mikið til í hausnum á okkur. Óli hefur lagað það. Einnig hefur Hjalli hjálpað okkur, í gær í hálfleik sagði hann okkur að hann vissi að mundum vinna.
Næsti leikur er gegn KA í bikarnum á fimmtudaginn, hvernig leggst hann í ykkur?
Gilles: Þetta leikur sem við ætlum okkur að vinna, það sem ég hef heyrt um KA þá erum við með betra lið og ætlum okkur áfram. Einnig er ágætt að sterku liðin í Pepsi deildinni eru mörg að mæta hvert öðru.
Hvaða andstæðingur í Pepsi deildinni hefur verið erfiðastur?
Fram, þeir eru með mjög góða vörn og gott að heyra að Jón Guðni Fjóluson er e.t.v. að fara úr vörninni hjá þeim til Grikklands.
Með hvaða liðum haldið þið með í HM?
Gilles: Fílabeinsströndinni og Spánni.
Loic: Brasilíu og Argentínu.
Hvernig er lífið í Grindavík?
Gott, ekkert vandamál með það. Það er líka gott að fá bróðir sinn með sér og við skiptumst t.d. að elda